Fermingarbörn næsta vors og foreldrar þeirra eru sérstalega boðin til guðsþjónustu sun. 7. sept. kl. 11:00

Í framhaldinu verður kynningarfundur um fermingarstarf vetrarins. Prestar Dómkirkjunnar eru í samstarfi við Hallgrímssöfnuð um fermingarstarf og er fyrirhugað að börnin fari í fermingarerðalag í Skálholtsbúðir helgina 3.-5. okt. n.k.

Hlökkum til samstarfsins í vetur!

Sveinn Valgeirsson

Elínborg Sturludóttir

Fermingarveturinn er tími fjölskyldunnar. Á fermingarvetri er tækifæri til að sameinast um hið heilaga, læra, biðja og eiga samfélag í kirkjunni og upplifa hátíðir hennar á sérstakan máta. Foreldrar og fjölskylda eru hvött til þátttöku í helgihaldi kirkjunnar á fermingarvetri barnsins. Með því að koma með foreldrum eða forráðamönnum sínum til helgihaldsins læra fermingarbörnin betur að njóta þátttöku í starfi kirkjunnar.  Auk fræðslunnar er lagt upp með að börnin taki þátt í tíu messum hið minnsta.

Hvað getur maður vitað um Guð?

Hvað er trú?

Hver er ég?

Er tilgangur með lífinu?

Hvernig get ég haft góð áhrif á samfélagið sem ég lifi í?

Þetta eru stórar spurningar og ekkert víst að við getum svarað þeim í eitt skipti fyrir öll. En það getur verið gott og gagnlegt að velta þeim fyrir sér og það ætlum við að gera í fermingarfræðslu Dómkirkjunnar næsta vetur. Þar ert þú velkomin(n).

Fermingardagar 2026

  • Pálmasunnudagur 2026
  • Hvítasunnudagur 2026

Hlökkum til að samverunnar í vetur;-)

Skráning í fermingarfræðslu

Skráning í fermingarfræðslu 2025-2026 fer fram rafrænt. Smelltu hér til þess að skrá.