Sönghópurinn Marteinn samanstendur af um 50 vinum sem á sungu í Dómkórnum undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar dómorganista á einhverjum tímapunkti á árunum 1978 til 2010. Þó liðin séu brátt 15 ár frá andláti stjórnandans þá heldur kórinn áfram að hittast og rifja upp gamlar minningar og rækta áratuga vináttu. Æfingar eru óreglulegar og ráðast oftast af væntanlegu viðfangsefni eða einhverju skemmtilegu tilefni. Þrír meðlimir kórsins hafa deilt því verkefni að reyna að fylla í skarð Marteins: Þórunn Björnsdóttir, þekktur stjórnandi barna- og unglingakóra, hæfileikaríki tenórinn Sigmundur Sigurðsson, að öðru leyti mjólkurbílstjóri á Suðurlandi, og sópraninn Kristín Valsdóttir, sem starfar að jafnaði sem dósent við listkennsludeild Listaháskóla Íslands. Kórinn fer reglulega í æfngarbúðir og ferðalög og er nýkominn frá Spáni þar sem hann tók þátt í stóru kóramóti og kom sjálfum sér og öðrum á óvart með glæsilegri frammistöðu. Sönghópurinn Marteinn fagnar því að geta haft kóræfingar í Dómkirkjunni.



